Hey góðir hálsar!
Núna er sunnudagurinn 5. október og ég ligg hérna uppí rúmi nýbúin að kveðja fólk á msn. Ég, Fanney, Ragna og Beta höfðum planað skype hitting en sökum tæknilegrar örðugleika gátum við það ekki. Ég geymi þá bara spenninginn þangað til næst

Ég var ekki búin að segja ykkur frá stórleik ársins!! Við spiluðum á móti Columbus State University fyrir viku og þetta var svona eiginlegur úrslitaleikur í Conference cup. (Svona eins og þegar KR og Valur í kvenna keppa í Landsbankadeildinni). Við vorum 2-0 yfir og vorum að yfirspila þær. Við förum vongóðar og glaðar inní hálfleik og ætlum að klára þetta...en allt kom fyrir ekki! Þær náðu að jafna, þannig að leikurinn fer í framlengingu!!! Þær skora svo úr aukaspyrnu og vinna! Við trúðum þessu ekki, að við hefðum gefið þeim þetta svona...þjálfarinn varð snarbrjálaður og stelpurnar líka....eftir þennan leik var æfing kl 6:30 um morguninn og önnur kl 3...fitness!! jeiii....við tökum nefnilega nokkrum sinnum í viku svona interval hlaup, sem við tökum svona 2svar á ári á Íslandi. Það er ógeð!!
En eftir þennan leik höfum við spilað 2 leiki. Einn sem við unnum 6-0, of easy og svo gerðum við 2-2 jafntefli í gær við Georgia College. Ég átti eina assist! (Assist er 1 point en mark 2 point og svo er kíkt í lokin hve mörg stig þú ert með).
Þegar ég og Þórdís komum heim um 1 am í gær vorum við engan veginn þreyttar svo við poppuðum okkur sitthvorn 100 calorie smart choice popp-pokann og fengum okkur sitthvora kókdósina og horfðum á The Sweetest thing. Það sem var skrítið var að eftir myndina um 3 leytið vorum við ekkert þreyttar en við vissum að við yrðum að fara að sofa svo dagurinn í dag myndi ekki verða ónýtur.
Í dag komu Jamie og Kirsten til okkar um 11 leytið með fullt af groceries og við gerðum gourmé morgunmat. Við gerðum svona mini-hamburgers, ommelettu, eggjabrauð með sírópi og cinnamon rolls. Ég sagði aldrei að þetta var hollt. Hehe...
Eftir morgunmatinn fórum við svo með hundana þeirra...Striker and Tucker niðrað vatni þar sem þeir hlupu um, syntu og komu svo uppúr og skvettu vatni á okkur....jammí!! Carrie, önnur stelpa í liðinu, kom líka með Charlie hundinn sinn. En það eiga ekkert smá margir hunda hérna. Þú ert reyndar undantekning ef þú átt ekki hund eða eitthvað dýr hérna. Eftir góðar stundir þarna í sólinni fórum við í mollið og keyptum okkur Victoria secret dót og síðan fjárfesti ég í teeth whitening...hlakka til að sjá hvernig það virkar

2 sinnum í hálftíma á hverjum degi í tvær vikur og þá á ég að vera með hvítari tennur í heilt ár!! Smá tilraunastarfsemi....en sökum bágs efnahags á Íslandi og genginu ákváðum við að vera ekkert að versla mikið meira að sinni.

Hérna er Þórdís, Erin "Vanilla" og ég í búðinni...klukkan 11 að kvöldi ákváðum við að okkur langaði í cupcakes..so what did we do? Við fórum í búðina og keyptum innihaldið. Þær voru eins og "little piece of heaven" eins og þeir myndu segja hérna í ameríkunni.

Hérna erum við með Jess, sjúkraþjálfaranum okkar, en hún bauð okkur í "Low-country Boil" hjá kirkjunni sinni á föstudagskvöldinu. Low-country Boil er rækjur, pylsur, maís ofl kryddað og soðið saman og er eitthvað sem þekkist bara hérna í Savannah og umhverfi. Þetta var "The church of Jesus Christ" en þau trúa að Guð sé ennþá að leiðbeina okkur og að hann hafi ekki bara skapað jörðina og hætt svo öllum afskiptum. Svo fengum við að taka túr um kirkjuna og heyrðum fullt af sögum um öll málverkin, sáum skírnarlaug fyrir fullorðna, fullt af kennslustofum og það eru krakkar sem mæta ALLA skóladaga kl. 6 um morguninn þarna til að læra um jesú og lesa biblíuna og the book of mormons þarna áður en þau fara í skóla....það kalla ég dugnað!! En já þetta var svona mormónakrikja...mjög gaman að fara þarna og sjá svona mismunandi menningu. Og jú er það ekki partur af því að vera í fjarlægu landi að prófa og læra nýja hluti.
Myndavélin mín er eitthvað að stríða mér og þótt að ég sé búin að eyða öllum myndunum þá segir hún að memory sé fullt en samt engar myndir til að skoða eða no images to display. Svo er ipod-inn minn eitthvað að klikka, batteríið í ruglinu...tæknilegir örðugleikar alls staðar bara.
Svo hefur það tvisvar gerst að áður en þjóðsöngurinn er spilaður fyrir leiki þá kemur eitthvað allt annað lag. Í eitt skipti kom "ísbíls-lagið", voða jollí lag eitthvað..haha já semsagt tæknilegir örðugleikar!
Núna fer klukkan að nálgast 7una og við, íslendingarnir, erum boðnir í grill til Jamie og Kirsten....grillaður lax...ég held að það gerist ekki betra!
En já nú kallar Þórdís..."Tilbúin eftir 2 mínútur!!"
Hahaha svo ætli ég láti þetta ekki duga í bili...alltaf gaman að blogga hérna og ég biðst afsökunar á hve lengi þetta var í bígerð...hehe...elska ykkur öll sem lesið þetta rugl í mér hérna!!
Take care, Björg Magnea